Fréttir

Gísli Pálmi með nýja tónlist í ofninum

screenshot 2026 08 03 at 15.37.55

Gísli Pálmi er búinn að skjóta tónlistarmyndband með Konráði Bjarti fyrir nýtt lag ‘SÍMINN ORÐINN HEITUR’ sem kemur út bráðlega.

Síðasta sumar gaf Gísli út remastered útgáfu af 2011-2012 lögunum sínum við miklar og góðar undirtektir en fyrir utan gestavers á lögum með Flona, Issa, Yung Nigo og fleirum þá hefur Gísli ekki gefið út nýja tónlist á sínum vegum í þó nokkur ár.