Bergþór Másson hefur stigið fram opinberlega til varnar rapparanum Herra Hnetusmjör eftir gagnrýni sem birtist í plötudómi hjá Jón Trausti Reynisson, ritstjóra Heimildarinnar.
Í færslu sinni segir Bergþór að hann telji gagnrýnina bera vott um ákveðna „myglu“ í miðlinum og að hún sé svo mikil að hún skyggi á það sem hann telur vera augljósan árangur listamannsins. Hann bendir á að Herra Hnetusmjör hafi á undanförnum árum byggt upp tónlistarveldi á eigin forsendum á frjálsum markaði – afrek sem hann segir nánast einsdæmi á síðustu 30 árum.
„Það er ekki hægt að sjá einn jákvæðan hlut í því að venjulegur gaur frá Vatnsenda hafi risið upp og byggt þetta frá grunni,“ skrifar Bergþór og bætir við að eftirspurn eftir tónlist Herra Hnetusmjörs og tengingin við hlustendur sé líklega sú mesta í íslenskri tónlistarsögu.
Hann hafnar því jafnframt að árangurinn sé tilviljunarkenndur og segir tónlistina vera afrakstur áratuga vinnu, þar sem bæði framleiðsla og orðaforði séu vandlega unnin og oft frumleg.
Gagnrýni á Herra Hnetusmjör sé að hans mati ekki ný af nálinni og hafi lengi fylgt listamanninum, sérstaklega frá svokölluðu „menningar-establishmenti“. Þrátt fyrir það hafi hann haldið sínu striki og byggt upp feril sem sé að miklu leyti sjálfsprottinn og óháður hefðbundnum kerfum.
„Núna uppsker hann ríkulega, selur upp höllina og býr án nágranna – fullkomlega self-made,“ skrifar Bergþór og segir stöðu hans jafnframt vera áminningu um að leikreglur í tónlistariðnaðinum hafi breyst.
Að lokum segir hann að þeir sem fylgst hafi með uppbyggingu ferilsins geti vart annað en viðurkennt stærðina í verkefninu, óháð skoðunum á tónlistinni sjálfri.
Umrædd plata Herra Hnetusmjörs hefur notið mikilla vinsælda og er sem stendur sú mest streymda á Íslandi.
Bergþór segir þetta í kjölfar pistils/plötugagnrýni sem Jón Trausti Reynisson ritsjóri Heimildarinnar birti á dögunum þar sem hann gerði ekki annað en að hæðast að Herra og plötunni hans TÓNLIST TIL AÐ SIGRA VIÐ.
Platan er mest streymda plata ársins á Íslandi.