Gísli Pálmi er búinn að skjóta tónlistarmyndband með Konráði Bjarti fyrir nýtt lag ‘SÍMINN ORÐINN HEITUR’ sem kemur út bráðlega.
Síðasta sumar gaf Gísli út remastered útgáfu af 2011-2012 lögunum sínum við miklar og góðar undirtektir en fyrir utan gestavers á lögum með Flona, Issa, Yung Nigo og fleirum þá hefur Gísli ekki gefið út nýja tónlist á sínum vegum í þó nokkur ár.